Tilkynning um KDE 3.4.2
28. júlí 2005
KDE verkefnið gefur út aðra þýðingar og viðhaldsútgáfuna af leiðandi frjálsa skjáborðinu
KDE verkefnið gefur út aðra þýðingar og viðhaldsútgáfuna af 3.4 kynnslóðar GNU/Linux - UNIX skjáborðinu, sem býður fyrirtækjum og ríkisstjórnum upp á frjálsa og opna skjáborðslausn.
28. júlí 2005 - KDE verkefnið tilkynnir í dag um fáanleika KDE 3.4.2, viðhaldsútgáfu fyrir öflugasta frjálsa skjáborðið fyrir GNU/Linux og önnur UNIX kerfi. KDE 3.4.2 kemur með grunn skjáborðinu ásamt fimmtán öðrum pökkum (PIM, kerfisstjórnun, netforritum, kennsluleikjum, tólum, margmiðlun, leikjum, grafík, vefhönnun og meira). Margverðlaunuðu KDE tólin og forritin eru fáanleg á 51 tungumáli.
KDE, ásamt öllum forritum og söfnum þess, má nálgast endurgjaldslaust undir notkunarskilmálum Open Source. Það má nálgast kóðann og ýmsa keyrslupakka á niðurhalssíðunni, einnig er hægt að panta geisladisk eða nálgast það hjá einhverri af aðal GNU/Linux - UNIX dreifingunum sem koma út í dag.
Endurbætur
KDE 3.4.2 er viðhaldsútgáfa sem leiðréttir villur sem voru tilkynntar á bugs.kde.org, ásamt auknum stuðningi við eldri og nýjar þýðingar.
Fyrir nánari lista yfir endurbætur frá KDE 3.4.1 sem kom út í maí, skoðaðu KDE 3.4.2 breytingarannálinn.
Nánari upplýsingar um endurbætur á KDE 3.4.x seríunni má finna í KDE 3.4 tilkynningunni.
Live-CD
"Klax" KDE 3.4.2 Live-CD gerir þér kleyft að prófa þessa útgáfu á x86 tölvu án þess að þurfa að hafa GNU/Linux eða aðra UNIX dreifingu, og án þess að þurfa að setja inn pakkana.
Að setja upp KDE 3.4.2 keyrslupakka
Pakkahöfundar. Nokkrir Linux/UNIX dreifingaraðilar hafa boðið upp á keyrslupakka af KDE 3.4.2 fyrir sumar útgáfur af sínum kerfum, og í öðrum tilfellum hafa sjálfboðaliðar gert það. Nokkra af þessum pökkum má nálgast endurgjaldslaust frá http://ftp.rhnet.is. Aukalegir pakkar, ásamt uppfærslum við núverandi pakka, geta verið aðgengilegar á komandi vikum.
Staðsetning pakka. Fyrir lista yfir keyrslupakka sem KDE verkefnið hefur fengið upplýsingar um, skoðaðu KDE 3.4.2 upplýsingasíðuna.
Að byggja KDE 3.4.2
Frumkóði. Allann frumkóða KDE 3.4.2 má nálgast endurgjaldslaust. Upplýsingar um að byggja og setja inn KDE 3.4.2 má finna á KDE 3.4.2 upplýsingasíðunni.
Styðja við KDE
KDE er frjáls hugbúnaðar, verkefnið vex og dafnast einungis vegna hjálpar margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem það er við kóðun, villuleiðréttingar eða tilkynningar, skrifun af skjölum, þýðingar, kynningar, peningagjafir, o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lesið styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar.
Við vonumst til að heyra frá þér.
Um KDE
KDE er margverðlaunað, óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofuumhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni.
KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð sem inniheldur fyrsta flokks flakkara (Konqueror), persónulegan skipuleggjara (Kontact), skrifstofuvöndull(KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnuðarumhverfi sem inniheldur hið frábæra KDevelop.
KDE er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.
Vörumerki. KDE og K Desktop Environment eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila..
Fréttatengiliðir
|
Afríka Uwe Thiem P.P.Box 30955 Windhoek Namibía Sími: +264 - 61 - 24 92 49 info-africa kde.org |
Asía Sirtaj S. Kang C-324 Defence Colony New Delhi Indland 110024 Sími: +91-981807-8372 info-asia kde.org |
|
Evrópa Matthias Kalle Dalheimer Rysktorp S-683 92 Hagfors Svíþjóð Sími: +46-563-540023 Fax: +46-563-540028 info-europe kde.org |
Norður Ameríka George Staikos 889 Bay St. #205 Toronto, ON, M5S 3K5 Kanada Sími: (416)-925-4030 info-northamerica kde.org |
|
Ástralía Hamish Rodda 11 Eucalyptus Road Eltham VIC 3095 Ástralía Sími: (+61)402 346684 info-oceania kde.org |
Suður Ameríka Helio Chissini de Castro R. José de Alencar 120, apto 1906 Curitiba, PR 80050-240 Brasilía Sími: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670 info-southamerica kde.org |
K skjáborðið