Tilkynning um KDE 3.4
16. mars 2005
KDE verkefnið gefur út nýja aðalútgáfu af fremsta Open Source skjáborðsumhverfinu.
16. mars 2005 - Eftir meira en hálft ár af þróun er KDE verkefnið stolt af að geta tilkynnt um nýja aðalútgáfu af margverðlaunaða K skjáborðinu. Meðal þeirra mörgu nýjunga sem hafa komið inn eru endurbætur á aðgengi þær stærstu.
Ein af perlunum er þróaða KDE texti-í-tal kerfið sem meðal annars er byggt inn í PDF skoðarann, ritilinn, veflesarann og í nýja taltólið KSayIt. Gerir það kerfinu kleyft að lesa upp tilkynningar frá öllum KDE forritum. Munu sérstaklega sjónskertir og fólk með talerfiðleika hafa stórt gagn af þessu, en einnig ætti þetta að geta verið skemmtileg skjáborðsupplifun fyrir alla aðra.
Fyrir sjónskerta hefur verið bætt við fleiri háskerpu þemum, þar á meðal einu með algerlega svarthvítu táknmyndasafni. Önnur aðgengisforrit hafa einnig verið endurbætt. KMouseTool sem getur smellt með músinni fyrir þá sem þarfnast þess; KMouth getur látið tölvuna tala fyrir fólk með talerfiðleika; og KMagnifier sem stækkar hluta skjásins til að gera hann lesanlegri. Staðlaðir aðgengisfídusar sem "Loðnir lyklar", "klístraðir lyklar" og "skoppandi lyklar" eru orðnir mun aðgengilegri gegnum lyklaborðsbendingar. Þetta opnar tölvunotkunarmöguleika fyrir þjóðfélagshópa sem hafa verið yfirséðir lengi. KDE verkefnið mun hafa áframhaldin náin stuðning við aðgengissamfélagið til að ná til ennþá fleira fólks.
Annar stór áfangi eru endurbætur PIM vönduls KDE, Kontact, og á KDE spjallforritinu Kopete. Kontact er orðin ennþá léttari í notkun og stuðningur við hópvinnukerfið Kolab hefur verið uppfærður í útgáfu 2.0. Þýðir þetta að KDE getur boðið upp á fullkomið hópvinnukerfi sem inniheldur Open Source miðlara með stuðning við MS Windows Outlook biðlara. Aðrir miðlarar sem einnig er stuðningur við eru m.a. eGroupware, GroupWise, OpenGroupware.org og SLOX. Kopete bíður upp á endurbættan tengiliðalista með myndum af viðtakendum, endurbætta Kontact samvinnu og stuðning við AIM, Gadu-Gadu, GroupWise, ICQ, IRC, Jabber, Lotus Sametime, MSN, Yahoo, og sendingu af SMS.
Þar sem KDE er alþjóðlegt verkefni eru 49 tungumálaþýðingar fáanlegar og ennþá fleiri eiga trúlega eftir að bætast í hópinn með nýjum uppfærslupökkum KDE 3.4.
KDE er fáanlegt endurgjaldslaust undir skilmálum Open Source leyfisins og býður upp á 18 pakka af aukalegum forritum sem aðgengi, þróun, leikir, PIM, netkerfi, tól, kerfisstjórnun, kennsluleikir, margmiðlun, myndvinnsla og meira.
Viðbrögð frá aðgengissamfélaginu
"Með hverri nýrri útgáfu eykur KDE sinn stuðning við fólk með fötlun", Janina Sajka, sem stýrir aðgengisvinnuhópnum í Free Standards Group, sagði. "Þetta gerir KDE stöðugt meir aðlaðandi fyrir fólk með fötlun. Og gerir KDE einnig kleyft að uppfylla fleiri alþjóðlegar kröfur um aðgengi.
Lars Stetten frá aðgengisnotanadahópnum Linaccess hafði þetta að segja um útgáfuna: "Nýju aðgengisfítusarnir í KDE 3.4 er mikilvægt skref fyrir framtíðina, að gera fötluðu fólki mögulegt að nota KDE skjáborðið og taka þátt í samfélagi þess."
Yfirlit yfir helstu nýjungar
- Texti-í-tal kerfi með innbyggðan stuðning í Konqueror, Kate, KPDF og sjálfstæða forritið KSayIt
- Stuðningur við hljóðgerfla er innbyggður í skjáborðið
- Endurhannað ruslakerfi
- Kicker hefur fengið nýtt útlit og betri virkni
- Hægt er að afrita og líma texta og myndir frá PDF skjölum með KPDF, ásamt öðrum nýjungum
- Kontact styður fjöldan allan af hópvinnukerfum, þar á meðal eGroupware, GroupWise, Kolab, OpenGroupware.org og SLOX
- Kopete styður Novell Groupwise og Lotus Sametime og hefur nú samtvinnun við Kontact
- DBUS/HAL stuðningur gerir táknmyndum í media:/ og á skjáborðinu kleyft að endurspegla stöðu tækja
- KHTML hefur endurbættan stuðning við staðla og nánast fullan stuðning við CSS 2.1 og CSS 3
- Betri samræming á milli tveggja tölva
- Ný háupplausnar þema og algerlega svarthvítt táknmyndasafn
- Táknmyndafídus sem teiknar allar táknmyndir í tveimur völdum litum, sem breytir þriðja aðila forritatáknmyndum í háupplausnartáknmyndir
- Akregator gerir þér kleyft að lesa uppáhalds RSS-virku vefsíðurnar þínar á einum stað
- Juk getur nú sýnt umslagsmyndir gegnum myndleitaeiginleika Google
- KMail geymir nú lykilorð á öruggan hátt með KWallet
- Það er nú hægt að nota SVG myndir sem bakgrunn
- KHTML íforrit eru nú stillanleg þannig að hægt er að slá af þau sem eru ekki notuð. Þetta á þó ekki við um Netscape íforrit, en hægt er að minnka örgjörvanotkun þeirra og íforrit eru stöðugri
- Meir en 6.500 villur hafa verið leiðréttar
- Meir en 1.700 óskir hafa verið uppfylltar
- Meir en 80.000 viðbótum með fleiri milljónum af kóðalínum og skjölum hefur verið bætt við eða breytt
Fyrir nánari lista yfir endurbætur frá KDE 3.3, skoðaðu KDE 3.4 áætlunina á developer.kde.org.
Að nálgast KDE 3.4
Ýtarlegar upplýsingar um hvernig á að ná í og setja inn KDE 3.4 má finna á upplýsingasíðu útgáfunnar. Þar sem þetta er opið og frjálst verkefni kostar ekkert að ná í það. Pakkar fyrir þína Linux dreifingu finnast kannski á heimasíðu dreifingarinnar eða á niðurhalssíðunni. Einnig má nálgast frumkóðann þar. Bæði ArkLinux og Kubuntu hafa útbúið dreifingu sem inniheldur KDE 3.4 strax eftir útgáfu þess. Ef þú vilt byggja KDE frá grunni ættir þú að íhuga að nota Konstruct tólið, sem nær sjálfvirkt í pakkana, stillir þá og byggir KDE 3.4 fyrir þig.
Mörg fleiri KDE forrit má nálgast endurgjaldslaust á KDE-Apps.org og ný útlit og viðkomu endurbætur má finna á KDE-Look.org.
Stuðningur við KDE
KDE er opið frjálst verkefni sem er til og vex vegna vinnu margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem er við kóðun, villuleit eða endurgjöf, skrifun af skjölum, þýðingum, kynningu, peningagjöfum o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lesið styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar. Við vonumst til að heyra frá þér.
Um KDE
KDE er óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofu umhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni. KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð, fullann einingarbyggðan skrifstofuvöndull (KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnunarumhverfi sem inniheldur hið frábæra KDevelop. KDE er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.
KDE og K Desktop Environment eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila.
Fréttatengiliðir
|
Afríka Uwe Thiem P.P.Box 30955 Windhoek Namibía Sími: +264 - 61 - 24 92 49 info-africa kde.org |
Asía Sirtaj S. Kang C-324 Defence Colony New Delhi Indland 110024 Sími: +91-981807-8372 info-asia kde.org |
|
Evrópa Matthias Kalle Dalheimer Rysktorp S-683 92 Hagfors Svíþjóð Sími: +46-563-540023 Fax: +46-563-540028 info-europe kde.org |
Norður Ameríka George Staikos 889 Bay St. #205 Toronto, ON, M5S 3K5 Kanada Sími: (416)-925-4030 info-northamerica kde.org |
|
Ástralía Hamish Rodda 11 Eucalyptus Road Eltham VIC 3095 Ástralía Sími: (+61)402 346684 info-oceania kde.org |
Suður Ameríka Helio Chissini de Castro R. José de Alencar 120, apto 1906 Curitiba, PR 80050-240 Brasilía Sími: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670 info-southamerica kde.org |
K skjáborðið