• Skip to content
  • Skip to link menu
K skjáborðið
  • Upphafssíða / Tilkynningar
  • Veftré
  • Hafðu samband
 

Tilkynning um KDE 3.5.1

31. janúar 2006

KDE verkefnið gefur út þýðingar- og viðhaldsútgáfu af leiðandi frjálsa skjáborðinu

KDE verkefnið gefur út þýðingar- og viðhaldsútgáfu af 3.5 kynnslóðar GNU/Linux - UNIX skjáborðinu, sem býður fyrirtækjum og ríkisstjórnum upp á frjálsa og opna skjáborðslausn

31. janúar 2006 - KDE verkefnið tilkynnir í dag um fáanleika KDE 3.5.1, viðhaldsútgáfu af öflugasta frjálsa skjáborðinu fyrir GNU/Linux og önnur UNIX kerfi. KDE 3.5.1 kemur með grunn-skjáborðinu ásamt fjölda annara pakka (PIM, kerfisstjórnun, netforritum, kennsluleikjum, tólum, margmiðlun, leikjum, grafík, vefhönnun og meira). Margverðlaunuðu KDE forritin koma á yfir 63 tungumálum, og þar á meðal íslensku.

KDE, ásamt öllum forritum og söfnum þess, má nálgast endurgjaldslaust undir notkunarskilmálum Open Source. Það má nálgast kóðann og ýmsa keyrslupakka á niðurhalssíðunni, einnig er hægt að panta geisladisk eða nálgast það hjá einhverri af dreifingunum sem koma út í dag.

Endurbætur

KDE 3.5.1 er viðhaldsútgáfa sem leiðréttir villur sem voru tilkynntar á bugs.kde.org, ásamt auknum stuðningi við eldri og nýjar þýðingar.

Fyrir nánari lista yfir endurbætur frá KDE 3.5 sem kom út í nóvember, skoðaðu KDE 3.5.1 breytingarannálinn.

Nánari upplýsingar um endurbætur á KDE 3.5.x seríunni má finna í KDE 3.5 tilkynningunni.

Að setja upp KDE 3.5.1 keyrslupakka

Pakkahöfundar. Nokkrir Linux/UNIX dreifingaraðilar hafa boðið upp á keyrslupakka af KDE 3.5.1 fyrir sumar útgáfur af sínum kerfum, og í öðrum tilfellum hafa sjálfboðaliðar gert það. Nokkra af þessum pökkum má nálgast endurgjaldslaust frá http://ftp.rhnet.is. Aukalegir pakkar, ásamt uppfærslum við núverandi pakka, geta verið aðgengilegar á komandi vikum.

Staðsetning pakka. Fyrir lista yfir keyrslupakka sem KDE verkefnið hefur fengið upplýsingar um, skoðaðu KDE 3.5.1 upplýsingasíðuna.

Að byggja KDE 3.5.1

Frumkóði. Allann frumkóða KDE 3.5.1 má nálgast endurgjaldslaust. Upplýsingar um að byggja og setja inn KDE 3.5.1 má finna á KDE 3.5.1 upplýsingasíðunni.

Styðja við KDE

KDE er frjáls hugbúnaðar, verkefnið vex og dafnast einungis vegna hjálpar margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem það er við kóðun, villuleiðréttingar eða tilkynningar, skrifun af skjölum, þýðingar, kynningar, peningagjafir, o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lesið styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar.

Við vonumst til að heyra frá þér.

Um KDE

KDE er margverðlaunað, óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofuumhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni.

KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð sem inniheldur fyrsta flokks flakkara (Konqueror), persónulegan skipuleggjara (Kontact), skrifstofuvöndull(KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnuðarumhverfi sem inniheldur hið frábæra KDevelop.

KDE er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.


Vörumerki. KDE og K Desktop Environment eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila..


Fréttatengiliðir

Afríka
Uwe Thiem
P.P.Box 30955
Windhoek
Namibía
Sími: +264 - 61 - 24 92 49
info-africa kde.org
Asía
Sirtaj S. Kang
C-324 Defence Colony
New Delhi
Indland 110024
Sími: +91-981807-8372
info-asia kde.org
Evrópa
Matthias Kalle Dalheimer
Rysktorp
S-683 92 Hagfors
Svíþjóð
Sími: +46-563-540023
Fax: +46-563-540028
info-europe kde.org
Norður Ameríka
George Staikos
889 Bay St. #205
Toronto, ON, M5S 3K5
Kanada
Sími: (416)-925-4030
info-northamerica kde.org
Ástralía
Hamish Rodda
11 Eucalyptus Road
Eltham VIC 3095
Ástralía
Sími: (+61)402 346684
info-oceania kde.org
Suður Ameríka
Helio Chissini de Castro
R. José de Alencar 120, apto 1906
Curitiba, PR 80050-240
Brasilía
Sími: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670
info-southamerica kde.org

Um KDE

Skip menu "Um KDE"
  • Hvað er KDE?
  • Skjámyndir
  • Prófaðu KDE
  • Tilkynningar
  • Almennar upplýsingar
  • Skjöl
  • Styðja við KDE
  • KDE dót
  • Sagan
  • Wiki síða

Niðurhal

Skip menu "Niðurhal"
  • Stöðug útgáfa
  • Þróunar útgáfa
  • Frumkóði
  • FTP spegill

Samfélagið

Skip menu "Samfélagið"
  • Fólkið
  • Póstlistar
  • Spjallborð

Þróa

Skip menu "Þróa"
  • Taka þátt
  • Þróunarupplýsingar
  • Villugagnagrunnur
  • Þýðing
  • Kóðavísanir
  • WebSVN

Flakka

Skip menu "Flakka"
  • KDE fjölskyldan
  • Alþjóðlegt

Global navigation links

  • KDE Home
  • KDE Accessibility Home
  • Description of Access Keys
  • Back to content
  • Back to menu

Leita:


Haldið við af vefstjóra is.kde.org
KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. | Lagalegt