Tilkynning um KDE 3.5.3
31. maí 2006
KDE verkefnið gefur út þriðju þýðingar- og viðhaldsútgáfuna af leiðandi frjálsa skjáborðinu
KDE 3.5.3 býður upp á hraðari ræsingu, fjölda smá villuleiðréttinga, og nokkrar vel prófaðar nýjungar.
31. maí 2006 - KDE verkefnið tilkynnir í dag um fáanleika KDE 3.5.3, viðhaldsútgáfu af öflugasta frjálsa skjáborðinu fyrir GNU/Linux og önnur UNIX kerfi. Vegna langrar biðar eftir KDE 4 voru nokkrar nýjungar teknar með í þetta skiptið, sem er annars ekki venjan með viðhaldsútgáfur. Stöðugleiki og hraði hafa einnig tekið framförum, ásamt auknum stuðningi við 65 tungumál.
Helstu endurbætur eru:
- Ræsiferli KDE hefur verið endurraðað til að stytta ræsitímann.
- Yfir 800 minniháttar villur lagfærðar þökk sé Coverity, sem hluti af verkefni sem stutt er af Bandarísku ríkisstjórninni.
- Smáar viðbætur voru teknar með í Akregator, KMail og KAlarm. Þessi úgáfa breytir þeirri venju að einskorða viðhaldsútgáfur við villuleiðréttingar. Slakað var aðeins á "viðbótarfrostinu" til að gera gagnlegum viðbótum kleyft að koma með sem hefur verið haldið aftur vegna langs útgáfuferils 3.5.x seríunar.
KDE 3.5.3 kemur með grunn-skjáborðinu ásamt fjölda annara pakka (PIM, kerfisstjórnun, netforritum, kennsluleikjum, tólum, margmiðlun, leikjum, grafík, vefhönnun og meira). Margverðlaunuðu KDE forritin koma á yfir 65 tungumálum, með tvö ný tungumál: víetnömsku og kasaksísku.
Fyrir nánari lista yfir breytingar frá KDE 3.5.2 sem kom út í mars 2006, skoðaðu KDE 3.5.3 breytingarlistann.
Að setja upp KDE 3.5.3 keyrslupakka
Pakkahöfundar. Nokkrir Linux/UNIX dreifingaraðilar hafa boðið upp á keyrslupakka af KDE 3.5.3 fyrir sumar útgáfur af sínum kerfum, og í öðrum tilfellum hafa sjálfboðaliðar gert það. Nokkra af þessum pökkum má nálgast endurgjaldslaust frá http://ftp.rhnet.is. Aukalegir pakkar, ásamt uppfærslum við núverandi pakka, geta verið aðgengilegar á komandi vikum.
Staðsetning pakka. Fyrir lista yfir keyrslupakka sem KDE verkefnið hefur fengið upplýsingar um, skoðaðu KDE 3.5.3 upplýsingasíðuna.
Að byggja KDE 3.5.3
Frumkóði. Allann frumkóða KDE 3.5.3 má nálgast endurgjaldslaust. Upplýsingar um að byggja og setja inn KDE 3.5.3 má finna á KDE 3.5.3 upplýsingasíðunni.
Styðja við KDE
KDE er frjáls hugbúnaðar, verkefnið vex og dafnast einungis vegna hjálpar margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem það er við kóðun, villuleiðréttingar eða tilkynningar, skrifun af skjölum, þýðingar, kynningar, peningagjafir, o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lesið styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar.
Við vonumst til að heyra frá þér.
Um KDE
KDE er margverðlaunað, óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofuumhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni.
KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð sem inniheldur fyrsta flokks flakkara (Konqueror), persónulegan skipuleggjara (Kontact), skrifstofuvöndull(KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnuðarumhverfi sem inniheldur hið frábæra KDevelop.
KDE er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.
Vörumerki. KDE og K Desktop Environment eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila..
Fréttatengiliðir
|
Afríka Uwe Thiem P.P.Box 30955 Windhoek Namibía Sími: +264 - 61 - 24 92 49 info-africa kde.org |
Asía Sirtaj S. Kang C-324 Defence Colony New Delhi Indland 110024 Sími: +91-981807-8372 info-asia kde.org |
|
Evrópa Matthias Kalle Dalheimer Rysktorp S-683 92 Hagfors Svíþjóð Sími: +46-563-540023 Fax: +46-563-540028 info-europe kde.org |
Norður Ameríka George Staikos 889 Bay St. #205 Toronto, ON, M5S 3K5 Kanada Sími: (416)-925-4030 info-northamerica kde.org |
|
Ástralía Hamish Rodda 11 Eucalyptus Road Eltham VIC 3095 Ástralía Sími: (+61)402 346684 info-oceania kde.org |
Suður Ameríka Helio Chissini de Castro R. José de Alencar 120, apto 1906 Curitiba, PR 80050-240 Brasilía Sími: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670 info-southamerica kde.org |
K skjáborðið