• Skip to content
  • Skip to link menu
K skjáborðið
  • Upphafssíða / Tilkynningar
  • Veftré
  • Hafðu samband
 

Tilkynning um KDE 3.5.5

11. október 2006

KDE verkefnið gefur út fimmtu þýðingar- og viðhaldsútgáfuna af leiðandi frjálsa skjáborðinu

KDE 3.5.5 inniheldur þýðingar á 65 tungumálum, endurbætur á snarskilaboðum og á HTML teiknivélinni (KHTML).

11. október 2006 - KDE verkefnið tilkynnir í dag um fáanleika KDE 3.5.5, viðhaldsútgáfu af öflugasta frjálsa skjáborðinu fyrir GNU/Linux og önnur UNIX kerfi. KDE styður í dag 65 tungumál, sem gerir það aðgengilegra en flestan lokaðan hugbúnað á markaðinum í dag.

Helstu endurbætur eru:

  • Útgáfa 0.12.3 af Kopete kemur í stað 0.11.3 í KDE 3.5.5, inniheldur hún stuðning við Adium þemur, hraðaendurbætur og aukinn stuðning við Yahoo! og Jabber samskiptareglurnar.
  • Stuðningur við sudo í kdesu.
  • Stuðningur við input shape frá XShape1.1 í KWin (KDE gluggastjórinn).
  • Fullt af hraðaendurbótum og leiðréttingum í HTML vél, KHTML, Konqueror.
  • CUPS 1.2 stuðningur í KDEPrint.
  • Mikil aukning í þýddum viðmótshlutum í hefðbundinni kínversku, Farsi, Khmerísku, Low Saxon og Slóvensku.

Til að skoða nánari lista yfir breytingar frá KDE 3.5.4 útgáfunni sem kom út þann 2. ágúst 2006, skoðaðu KDE 3.5.5 breytingarannálinn.

KDE 3.5.5 kemur með grunn-skjáborðinu ásamt fjölda annara pakka (PIM, kerfisstjórnun, netforritum, kennsluleikjum, tólum, margmiðlun, leikjum, grafík, vefhönnun og meira). Margverðlaunuðu KDE forritin koma á 65 tungumálum.

Dreifingar sem koma með KDE

Flestar Linux dreifingar og UNIX stýrikerfi koma ekki strax með nýjar KDE útgáfur, en koma með KDE 3.5.5 í næstu útgáfu af sýnum kerfum. Skoðaðu þennan lista yfir hvaða dreifingar koma með KDE.

Að setja upp KDE 3.5.5 keyrslupakka

Pakkahöfundar. Nokkrir Linux/UNIX dreifingaraðilar hafa boðið upp á keyrslupakka af KDE 3.5.5 fyrir sumar útgáfur af sínum kerfum, og í öðrum tilfellum hafa sjálfboðaliðar gert það. Nokkra af þessum pökkum má nálgast endurgjaldslaust frá http://ftp.rhnet.is. Aukalegir pakkar, ásamt uppfærslum við núverandi pakka, geta verið aðgengilegar á komandi vikum.

Staðsetning pakka. Fyrir lista yfir keyrslupakka sem KDE verkefnið hefur fengið upplýsingar um, skoðaðu KDE 3.5.5 upplýsingasíðuna.

Að byggja KDE 3.5.5

Frumkóði. Allann frumkóða KDE 3.5.5 má nálgast endurgjaldslaust. Upplýsingar um að byggja og setja inn KDE 3.5.5 má finna á KDE 3.5.5 upplýsingasíðunni.

Styðja við KDE

KDE er frjáls hugbúnaðar, verkefnið vex og dafnast einungis vegna hjálpar margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem það er við kóðun, villuleiðréttingar eða tilkynningar, skrifun af skjölum, þýðingar, kynningar, peningagjafir, o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lestu styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar.

Við vonumst til að heyra frá þér.

Um KDE

KDE er margverðlaunað, óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofuumhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni.

KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð sem inniheldur fyrsta flokks flakkara (Konqueror), persónulegan skipuleggjara (Kontact), skrifstofuvöndull(KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnuðarumhverfi sem inniheldur hið frábæra KDevelop.

KDE er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.


Vörumerki. KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila.


Fréttatengiliðir

Afríka
Uwe Thiem
P.P.Box 30955
Windhoek
Namibia
Phone: +264 - 61 - 24 92 49
info-africa kde.org
Asía og Indland
Pradeepto Bhattacharya
A-4 Sonal Coop. Hsg. Society
Plot-4, Sector-3,
New Panvel,
Maharashtra.
India 410206
Phone : +91-9821033168
info-asia kde.org
Evrópa
Matthias Kalle Dalheimer
Rysktorp
S-683 92 Hagfors
Sweden
Phone: +46-563-540023
Fax: +46-563-540028
info-europe kde.org
Norður Ameríka
George Staikos
889 Bay St. #205
Toronto, ON, M5S 3K5
Canada
Phone: (416)-925-4030
info-northamerica kde.org
Ástralía
Hamish Rodda
11 Eucalyptus Road
Eltham VIC 3095
Australia
Phone: (+61)402 346684
info-oceania kde.org
Suður Ameríka
Helio Chissini de Castro
R. José de Alencar 120, apto 1906
Curitiba, PR 80050-240
Brazil
Phone: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670
info-southamerica kde.org

Um KDE

Skip menu "Um KDE"
  • Hvað er KDE?
  • Skjámyndir
  • Prófaðu KDE
  • Tilkynningar
  • Almennar upplýsingar
  • Skjöl
  • Styðja við KDE
  • KDE dót
  • Sagan
  • Wiki síða

Niðurhal

Skip menu "Niðurhal"
  • Stöðug útgáfa
  • Þróunar útgáfa
  • Frumkóði
  • FTP spegill

Samfélagið

Skip menu "Samfélagið"
  • Fólkið
  • Póstlistar
  • Spjallborð

Þróa

Skip menu "Þróa"
  • Taka þátt
  • Þróunarupplýsingar
  • Villugagnagrunnur
  • Þýðing
  • Kóðavísanir
  • WebSVN

Flakka

Skip menu "Flakka"
  • KDE fjölskyldan
  • Alþjóðlegt

Global navigation links

  • KDE Home
  • KDE Accessibility Home
  • Description of Access Keys
  • Back to content
  • Back to menu

Leita:


Haldið við af vefstjóra is.kde.org
KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. | Lagalegt