• Skip to content
  • Skip to link menu
K skjáborðið
  • Upphafssíða / Tilkynningar
  • Veftré
  • Hafðu samband
 

Tilkynning um KDE 3.5.7

22. maí 2007

Einnig fáanlegt á:
katalónsku, kínversku, spænsku, ítölsku, hollensku og portúgölsku.

KDE verkefnið gefur út sjöundu þýðingar- og viðhaldsútgáfuna af leiðandi frjálsa skjáborðinu

KDE 3.5.7 inniheldur þýðingar á 65 tungumálum, endurbætur á KDE PIM vöndlinum ásamt fleiri forritum.

22. maí 2007 - KDE verkefnið tilkynnir í dag um fáanleika KDE 3.5.7, viðhaldsútgáfu af öflugasta frjálsa skjáborðinu fyrir GNU/Linux og önnur UNIX kerfi. KDE styður í dag 65 tungumál, sem gerir það aðgengilegra en flestan lokaðan hugbúnað á markaðinum í dag.

Þessi útgáfa hefur sterkan fókus á KDE PIM forritin. KAddressBook, KOrganizer og KAlarm fengu áherslu á villuleiðréttingar, meðan KMail fékk nýjungar og endurbætur á bæði viðmóti og IMAP höndlun: það getur höndlað IMAP kvóta og afritað og flutt allar möppur.

Fleiri önnur forrit fengu endurbætur:

  • KPDF sýnir smáhjálp fyrir tengla þegar músin er yfir þeim, sýnir rétt flóknari PDF skrár sem þessa Firefox auglýsingu ásamt fleiri endurbótum.
  • Umbrello getur nú búið til og flutt út C# kóða og hefur fengið almennan stuðning við Java 5.
  • KDevelop kemur í stórri uppfærslu í útgáfu 3.4.1. Nýjungar innihalda meðal annars aukna kóðaklárun og stýringu, betra viðmót á villuleit, Qt4 stuðning og betri Ruby og KDE4 hönnunarstuðning.

Til viðbótar við nýjungar hafa víðáttumiklar villuleiðréttingar átt sér stað, sérstaklega í kennsluleikja og leikja pökkunum og í Kopete. Kopete hefur einnig fengið umtalsverða framvinduaukningu í spjallviðmóti.

Þessi útgáfa inniheldur áframhaldið starf við KHTML og KJS, HTML og Javascript vélar KDE, áhugaverð nýjung í KHTML lætur músarbendilinn gefa til kynna ef tengill vill opna nýjan glugga.

Til að skoða nánari lista yfir breytingar frá KDE 3.5.6 útgáfunni sem kom út þann 25. janúar 2007, skoðaðu KDE 3.5.7 breytingarannálinn.

KDE 3.5.7 kemur með grunn-skjáborðinu ásamt fjölda annara pakka (PIM, kerfisstjórnun, netforritum, kennsluleikjum, tólum, margmiðlun, leikjum, grafík, vefhönnun og meira). Margverðlaunuðu KDE forritin koma á 65 tungumálum.

Dreifingar sem koma með KDE

Flestar Linux dreifingar og UNIX stýrikerfi koma ekki strax með nýjar KDE útgáfur, en koma með KDE 3.5.7 í næstu útgáfu af sýnum kerfum. Skoðaðu þennan lista yfir hvaða dreifingar koma með KDE.

Að setja upp KDE 3.5.7 keyrslupakka

Pakkahöfundar. Nokkrir Linux/UNIX dreifingaraðilar hafa boðið upp á keyrslupakka af KDE 3.5.7 fyrir sumar útgáfur af sínum kerfum, og í öðrum tilfellum hafa sjálfboðaliðar gert það. Nokkra af þessum pökkum má nálgast endurgjaldslaust frá http://ftp.rhnet.is. Aukalegir pakkar, ásamt uppfærslum við núverandi pakka, geta verið aðgengilegar á komandi vikum.

Staðsetning pakka. Fyrir lista yfir keyrslupakka sem KDE verkefnið hefur fengið upplýsingar um, skoðaðu KDE 3.5.7 upplýsingasíðunni.

Að byggja KDE 3.5.7

Frumkóði. Allann frumkóða KDE 3.5.7 má nálgast endurgjaldslaust. Upplýsingar um að byggja og setja inn KDE 3.5.7 má finna á KDE 3.5.7 upplýsingasíðunni.

Styðja við KDE

KDE er frjáls hugbúnaðar, verkefnið vex og dafnast einungis vegna hjálpar margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem það er við kóðun, villuleiðréttingar eða tilkynningar, skrifun af skjölum, þýðingar, kynningar, peningagjafir, o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lestu styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar.

Við vonumst til að heyra frá þér.

Um KDE

KDE er margverðlaunað, óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofuumhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni.

KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð sem inniheldur fyrsta flokks flakkara (Konqueror), persónulegan skipuleggjara (Kontact), skrifstofuvöndull(KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnuðarumhverfi sem inniheldur hið frábæra KDevelop.

KDE er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.


Vörumerki. KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila.


Fréttatengiliðir

Afríka
Uwe Thiem
P.P.Box 30955
Windhoek
Namibia
Phone: +264 - 61 - 24 92 49
info-africa kde.org
Asía og Indland
Pradeepto Bhattacharya
A-4 Sonal Coop. Hsg. Society
Plot-4, Sector-3,
New Panvel,
Maharashtra.
India 410206
Phone : +91-9821033168
info-asia kde.org
Evrópa
Matthias Kalle Dalheimer
Rysktorp
S-683 92 Hagfors
Sweden
Phone: +46-563-540023
Fax: +46-563-540028
info-europe kde.org
Norður Ameríka
George Staikos
889 Bay St. #205
Toronto, ON, M5S 3K5
Canada
Phone: (416)-925-4030
info-northamerica kde.org
Ástralía
Hamish Rodda
11 Eucalyptus Road
Eltham VIC 3095
Australia
Phone: (+61)402 346684
info-oceania kde.org
Suður Ameríka
Helio Chissini de Castro
R. José de Alencar 120, apto 1906
Curitiba, PR 80050-240
Brazil
Phone: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670
info-southamerica kde.org

Um KDE

Skip menu "Um KDE"
  • Hvað er KDE?
  • Skjámyndir
  • Prófaðu KDE
  • Tilkynningar
  • Almennar upplýsingar
  • Skjöl
  • Styðja við KDE
  • KDE dót
  • Sagan
  • Wiki síða

Niðurhal

Skip menu "Niðurhal"
  • Stöðug útgáfa
  • Þróunar útgáfa
  • Frumkóði
  • FTP spegill

Samfélagið

Skip menu "Samfélagið"
  • Fólkið
  • Póstlistar
  • Spjallborð

Þróa

Skip menu "Þróa"
  • Taka þátt
  • Þróunarupplýsingar
  • Villugagnagrunnur
  • Þýðing
  • Kóðavísanir
  • WebSVN

Flakka

Skip menu "Flakka"
  • KDE fjölskyldan
  • Alþjóðlegt

Global navigation links

  • KDE Home
  • KDE Accessibility Home
  • Description of Access Keys
  • Back to content
  • Back to menu

Leita:


Haldið við af vefstjóra is.kde.org
KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. | Lagalegt