Tilkynning um KDE 3.5
29. nóvember 2005
Margar nýjungar og endurbætur gera KDE að fullkomna frjálsa skjáborðinu.
29. nóvember 2005 - KDE verkefnið er stolt af að tilkynna um nýja stórútgáfu af margverðlaunaða K skjáborðinu. Mörgum nýjungum og endurbótum hefur verið bætt við og gera þær KDE að mest heilsteypta, stöðuga og samtvinnaða frjálsa skjáborðinu á markaðinum.
Helstu breytingar eru:
- Konqueror er veflesari númer tvö til að standast Acid2 CSS prófið, á undan Firefox og Internet Explorer
- Konqueror getur nú hindrað auglýsingar frá vefsíðum
- SuperKaramba er innifalið í KDE og býður það upp á auðvelda innsetningu af ýmsum viðbótum við notandaskjáborðið
- Kopete styður nú MSN og Yahoo! vefmyndavélar
- Þrjú ný forrit hafa bæst við kennsluleikseininguna (KGeography, Kanagram og blinKen), og Kalzium hefur tekið stórum framförum
Fyrir nánari lista yfir breytingar, ásamt skjámyndum og útskýringum, skoðaðu myndræna KDE 3.5 yfirlitið.
Stephan Kulow, útgáfustjóri KDE, hafði þetta að segja: "Endurbæturnar sem hafa verið gerðar á seinasta árinu sýna hve þroskað KDE verkefnið er orðið. KDE er öflugasta skjáborðs og hönnunarumhverfið á markaðinum. KDE 3.5 mun bjóða notendum upp á hina fullkomnu skjáborðslausn næstu tvö árin, með væntanlegum stórbreytingum í KDE 4."
Að nálgast KDE 3.5
Ýtarlegar upplýsingar um hvernig á að ná í og setja inn KDE 3.5 má finna á upplýsingasíðu útgáfunnar. Þar sem þetta er opið og frjálst verkefni kostar ekkert að ná í það. Pakkar fyrir þína Linux dreifingu finnast kannski á heimasíðu dreifingarinnar eða á niðurhalssíðunni. Einnig má nálgast frumkóðann þar. Ef þú vilt byggja KDE frá grunni ættir þú að íhuga að nota Konstruct tólið, sem nær sjálfvirkt í pakkana, stillir þá og byggir KDE 3.5 fyrir þig.
Mörg fleiri KDE forrit má nálgast endurgjaldslaust á KDE-Apps.org og ný útlit og viðkomu endurbætur má finna á KDE-Look.org.
Stuðningur við KDE
KDE er opið frjálst verkefni sem er til og vex vegna vinnu margra sjálfboðaliða sem gefa sinn tíma og getu. KDE hefur alltaf þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða, hvort sem er við kóðun, villuleit eða endurgjöf, skrifun af skjölum, þýðingum, kynningu, peningagjöfum o.s.frv. Öll framlög eru vel þegin. Lesið styðja við KDE síðuna fyrir nánari upplýsingar. Við vonumst til að heyra frá þér.
Um KDE verkefnið
KDE er óháð verkefni sem samanstendur af hundruðum af forriturum, þýðendum, hönnuðum og öðrum sérfræðingum út um allan heim sem vinna saman að því að búa til og dreifa frjálst öflugu, stillanlegu og stöðugu skjáborðs- og skrifstofu umhverfi sem býður upp á sveigjanlegt, einingarbyggt, netgegnsætt kerfi ásamt frábærum hönnuðargrunni. KDE býður upp á stöðugt, dafnað skjáborð, fullann einingarbyggðan skrifstofuvöndull (KOffice), fjöldan allan af net og kerfisstjórnartólum, ásamt öflugu hönnunarumhverfi. KDE er í dag fáanlegt á yfir 80 tungumálum.
KDE, sem er byggt á Qt tækninni frá Trolltech, er lifandi sönnun á að Open Source "Bazaar-style" hugbúnaðarhönnun getur skilað topp hönnun á sömu línu og oft betri en þróuðustu lokuð kerfi.
KDE og K Desktop Environment eru vörumerki af KDE e.V. Linux er skrásett vörumerki af Linus Torvalds. UNIX er skrásett vörumerki af The Open Group í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Öll önnur vörumerki og höfundarréttar sem er minnst á í þessari tilkynningu eru eign viðkomandi aðila.
Fréttatengiliðir
|
Africa Uwe Thiem P.P.Box 30955 Windhoek Namibia Phone: +264 - 61 - 24 92 49 info-africa kde.org |
Asia Sirtaj S. Kang C-324 Defence Colony New Delhi India 110024 Phone: +91-981807-8372 info-asia kde.org |
|
Europe Matthias Kalle Dalheimer Rysktorp S-683 92 Hagfors Sweden Phone: +46-563-540023 Fax: +46-563-540028 info-europe kde.org |
North America George Staikos 889 Bay St. #205 Toronto, ON, M5S 3K5 Canada Phone: (416)-925-4030 info-northamerica kde.org |
|
Oceania Hamish Rodda 11 Eucalyptus Road Eltham VIC 3095 Australia Phone: (+61)402 346684 info-oceania kde.org |
South America Helio Chissini de Castro R. José de Alencar 120, apto 1906 Curitiba, PR 80050-240 Brazil Phone: +55(41)262-0782 / +55(41)360-2670 info-southamerica kde.org |
K skjáborðið