KDE pökkunarregla
Það má nálgast tvennskonar tegundir af pökkum frá KDE: binary pakka (rpm, deb, og þ.h.) og pakka sem innihalda frumkóðann. Binary pakkarnir eru vistþýddir (keyranlegir) pakkar af KDE sem er hægt að nota á ákveðnum dreifingum. Kóðapakkarnir eru hreinn kóði af KDE kerfinu sem þarf að byggja áður en hægt er að nota þá. Skoðaðu þessa síðu fyrir upplýsingar um það.
Einu pakkarnir sem KDE verkefnið gefur út og styður eru kóðapakkarnir.
Binary pakkar
Samtímis sem einu pakkarnir sem við styðjum eru kóðapakkarnir, vitum við að flestir KDE notendur vilja heldur (eða þurfa) binary pakka. Þar af leiðandi vinnur KDE verkefnið náið með ýmsum þriðja parts aðilum til að fá sem flesta binary pakka byggða.
Í grófum dráttum er ferlið slíkt:
- Nokkrum dögum áður en áætluð útgáfa kemur út eru kóðapakkarnir "forgefnir út" til þriðja aðila pökkunaraðila.
- Þeir byggja KDE í það snið sem dreifingarnar þeirra nota og senda þá til baka til KDE.
- Á útgáfudeginum eru þriðja aðila pakkarnir fluttir yfir á FTP þjónana ásamt kóðapökkunum.
Gæði pakkana geta verið mismunandi eftir útgefanda þeirra. Einnig hve fljótt þeir eru búnir til, hve "opinberir" þeir eru, og annað í þeim dúr. Það eru tvennskonar hópar af pökkunaraðilum: opinberir pökkunaraðilar dreifingar og notendur KDE og ákveðinnar dreifingar sem vilja gefa eithvað til baka.
Í fyrri hópnum eru fyrirtæki sem SUSE, Mandrake, og fleiri. Þetta eru fyrirtæki sem styðja KDE og vilja að þeirra notendur hafi hágæða pakka af nýjustu KDE útgáfunni. Í seinni hópnum eru notendur dreifinga sem styðja ekki KDE opinberlega. T.d. eru litlar líkur á að Compaq búi til KDE pakka fyrir Tru64 á næstunni, svo allir Tru64 pakkar sem þú finnur á KDE þjónum eru búnir til af notendum Tru64.
Við kjósum heldur að keyrslupakkar séu útbúnir af dreifingaraðilum þegar það er mögulegt. Eykur það líkurnar á að KDE sé rétt samtvinnað dreifingunni og virðist ekki vera "viðbót". Einungis þegar dreifing býður ekki upp á pakka munum við hafa með notandabyggða pakka.
Spurningar og svör
- Hvenær komið þið með pakka fyrir uppáhaldsdreifinguna mína?
- Við bjóðum upp á pakka fyrir uppáhaldsdreifinguna þína þegar (og bara þá) dreifingaraðilinn, eða notandi hennar, býr til pakkana og sendir þá til okkar. KDE verkefnið býr ekki sjálft til neina binary pakka.
K skjáborðið