Fáðu svör við spurningunum þínum
Fólk hefur oft spurningar um KDE, KDE forrit eða kerfin sín en veit ekki alltaf hvar svörin finnast. Hér er reynt að taka saman nokkrar gagnlegar auðlindir sem geta vonandi svarað þínum spurningum.
Fyrsta sem þarf að gera er að ákvarða hverslags spurningu þú hefur. Ef hún er um sjálft KDE, skoðaðu þá hluta 1. Ef hún er um KDE þróun, skoðaðu hluta 2. Sé spurningin tengd kerfinu þínu (t.d. "hljóðkerfið mitt virkar ekki") skoðaðu hluta 3. Og að lokum, ef þú hefur fundið villu í KDE, skoðaðu þá hluta 4.
1. Almennar KDE spurningar
Ef þú átt í vandræðum með KDE forrit sem er hluti "grunn" útgáfu KDE (kdebase, kdeutils, kdenetwork, o.s.frv.), eða um KDE skjáborðið, ættir þú að nýta þér auðlindirnar sem KDE samfélagið býður uppá.- Skoðaðu KDE Hjálparmiðstöðina. Með KDE fylgir hjálparmiðstöðvarforrit með skjölum allra KDE forritana, ásamt slatta af kerfisskjölunum á einum og sama staðnum. Þar má einnig finna nokkrar "flýtileiðbeiningar". Þetta er alltaf besti staðurinn til að byrja að leita eftir svörum á.
- Skoðaðu KDE notandahandbókina. KDE notandahandbókin er samansafn af grunn KDE upplýsingum. Það er þörf á meiri hjálp við að skrifa og halda henni við: sendu póst til KDE skjölunarteymisins ef þú getur hjálpað til.
- Lestu spurningar og svör (SOS). KDE skjölunarteymið hefur útbúið lista yfir oft spurðar spurningar. Ef þú ert að nota stöðuga (stable) útgáfu af KDE og hefur spurningu um hana, er henni líklega svarað þar.
- Leitaðu á KDE vefsíðunum. Mörg svör má finna á KDE vefsíðunum og skjölum þeirra. Þú getur leitað á öllum KDE vefsíðunum með því að nota leitarboxið í valmyndinni á KDE síðunum.
- Leitaðu á póstlistunum. Mörgum spurningum hefur þegar verið svarað á KDE póstlistunum, sérstaklega á kde og koffice (ekki á koffice-devel) póstlistunum. Þú getur leitað á þeim á lists.kde.org. Einnig finnst KDE fréttahópur sem heitir comp.windows.x.kde sem þú getur leitað á hér. Þú ættir alltaf að byrja á að leita á listunum áður en þú sendir inn spurningu. Þegar þú sendir inn spurningu á póstlista ertu að senda skeyti til þúsundir af fólki - vinsamlega gerðu það bara ef svarið finnst ekki með einfaldri leit.
- Leitarvélar. Ekki gleyma uppáhalds leitarvélinni þinni. Ein af betri leitarvélunum er Google. Þú getur einnig leitað með Google á stórum hluta fréttahópa á netinu, sem getur verið mjög gagnlegt fyrir almennar spurningar um ákveðið kerfi.
- Notaðu IRC. Þú getur fundið hjálpsamt fólk á freenode IRC netinu. Rásirnar #kde og #kde-users eru einkum ætlaðar til að hjálpa notendum með spurningar, og þú finnur fólk með mikinn kunnskap þar. Þú getur notað irc.kde.org sem þjón í IRC forritinu þínu til að tengjast freenode. Þessi ráð um hvernig á að spyrja ættu að hjálpa þér að fá gagnleg svör.
- Spurðu á KDE fréttahópum/póstlistum. Ef þú finnur ekki svar neinstaðar annarstaðar, getur þú prófað að spyrja á KDE fréttahópnum eða á KDE póstlista. Bestu valkostirnir fyrir notendaspurningar eru trúlega kde (áskrift), og fyrir KDE/GNU/Linux tengdar spurningar, kde-linux (áskrift) póstlistarnir og comp.windows.x.kde fréttahópurinn. Ef þú hefur spurningu um KOffice, getur þú reynt KOffice póstlistann (áskrift). Fullann lista yfir KDE póstlista má finna hér og hér.
2. KDE hönnunarupplýsingar
Ef þú hefur spurningu um KDE hönnun, getur þú notað valkostina að ofan ásamt þessum:
- Lestu hönnunar SOS. Mörgum spurningum hefur þegar verið svarað þar.
- Leitaðu á KDE vefsíðunum. Svör við mörgum spurningum má finna á KDE vefsíðunum og skjölum þeirra. Þú getur notað leitarboxið sem er á flestum KDE síðunum. Einnig getur þú skoðað KDE hönnunarsíðuna.
- Leitaðu á póstlistum. Fullt af spurningum hefur þegar verið svarað á KDE póstlistunum, sérstaklega kde-devel, kde2-porting, kde-core-devel, kde-games-devel, kfm-devel og koffice-devel. Þú getur leitað á listunum á lists.kde.org. Leitaðu alltaf að svari áður en þú sendir spurningu á póstlistana. Þegar þú sendir spurningu á póstlista ertu að senda skeyti til þúsunda af fólki - vinsamlega gerðu það bara ef svar fæst ekki með einfaldri leit.
- Leitarvélar. Ekki gleyma að nota uppáhalds leitarvélina þína. Ein besta leitarvélin er Google. Þú getur einnig leitað á flestum fréttahópum með Google, sem getur verið mjög gagnlegt, sérstaklega fyrir almennar forritunar og gcc tengdar spurningar.
- Spurðu á KDE póstlistunum. Ef þú finnur ekki svör við þínum
spurningum, getur þú prófað að spyrja á einum af póstlistunum að ofan.
- Fyrir spurningar um grunnhönnun eða þriðja aðila KDE hönnun er best að velja kde-devel (áskrift).
- Fyrir spurningar um Konqueror hönnun, notaðu kfm-devel (áskrift).
- Fyrir spurningar um KOffice hönnun, notaðu koffice-devel (áskrift).
- Fyrir spurningar um leikjahönnun, notaðu kde-games-devel (áskrift).
- Fyrir spurningar um Java hönnun með KDE, notaðu kde-java (áskrift)
- Fyrir spurningar um Qt hönnun, notaðu Qt póstlistann.
K skjáborðið