• Skip to content
  • Skip to link menu
K skjáborðið
  • Upphafssíða / Hvað er KDE? / Yfirlit
  • Veftré
  • Hafðu samband
 

Hvað er KDE?

Almennt

KDE er netgegnsætt nútímalegt skjáborðsumhverfi fyrir UNIX vinnustöðvar. Mál KDE er að uppfylla þörfina fyrir skjáborð fyrir UNIX vinnustöðvar, sem er jafn einfalt í notkun og MacOS eða Microsoft Windows. Við trúum því að UNIX stýrikerfið sé það besta sem er fáanlegt í dag, og staðreyndin er að UNIX hefur verið óumdeilanlegt val sérfræðinga í áraraðir. Þegar það kemur að stöðugleika, sveigjanleika og aðgengi finnst engin samkeppni við UNIX. Hinsvegar hefur vöntun á nútímalegu skjáborði sem er einfalt í notkun hindrað UNIX í að ná fram til venjulegra tölvunotenda í skrifstofu og heimaumhverfi. UNIX drottnar yfir miðlaramarkaðinum og tölvusérfræðingar og vísindamenn kjósa það fram yfir allt annað. Án UNIX væri Internetið ekki til. En UNIX sinnti ekki að þörfum venjulegra tölvunotenda, sem var mjög óheppilegt þar sem margar UNIX útfærslur (Debian GNU/Linux, FreeBSD, NetBSD o.s.frv.) er auðvelt að nálgast endurgjaldslaust á Netinu. Og eru þær allar af miklum gæðum og stöðugleika.

KDE skjáborðið

Með KDE er nú til nútímanlegt skjáborð sem er auðvelt í notkun fyrir UNIX. Saman með frjálsri útfærslu af UNIX sem GNU/Linux, býður UNIX/KDE upp á frjálst og opið stýrikerfi sem er aðgengilegt öllum endurgjaldslaust, ásamt frumkóðanum sem er hægt að breyta eftir þörfum. Þrátt fyrir að það megi alltaf endurbæta hluti trúum við því að við bjóðum upp á raunhæfan valkost við hefðbundnu stýrikerfin/skjáborðin sem eru í boði í dag. Og er það okkar von að UNIX/KDE samsetninging muni loksins færa venjulegum tölvunotendum sömu opnu, traustu, stöðugu og einokunarlausu tölvuvinnsluna sem vísindamenn og tölvusérfræðingar hafa haft gleði af í mörg ár.

KDE hugbúnaðarþróunarumhverfið

Að búa til forrit undir UNIX/X11 var áður fyrr mjög erfitt og þreytandi ferli. KDE veit að stýrikerfið er bara svo gott sem fjöldinn af fyrsta flokks forritum sem eru aðgengileg notendum þess. Með þetta í huga hefur KDE verkefnið hannað öflugt þróunarumhverfi sem býður upp á það nýjasta innan tækninnar og setur sig í beina samkeppni við önnur vinsæl þróunartól sem Microsoft MFC/COM/ActiveX. KDE þróunarumhverfið gerir hönnuðum auðvelt að útbúa á fljótan og einfaldan hátt fyrsta flokks forrit sem innihalda alla nýjustu tæknina.

KDE skrifstofuvöndullinn

Fjöldinn allur af forritum hafa verið byggð fyrir K skjáborðið með hjálp KDE þróunarumhverfisins. Úrval af þeim er hluti KDE grunnkerfisins. KDE er einnig að hanna skrifstofuvöndul sem samanstendur af töflureikni, kynningarforriti, skipuleggjara, ritvinnslu og meira. KDE skyggnusýningarforritið KPresenter hefur verið notað með góðum árangri við margar kynningar.

Meira...

Eftirtöldum síðum er ætlað að veita upplýsingar og hjálpa þeim að átta sig á KDE sem þekkja það ekki frá áður. Við reynum að fara yfir flesta hluta KDE og vonum að þú með þessu skiljir betra KDE og hönnun þess. KDE SOS hefur fleiri svör við mest vanalegu spurningunum.

Skoðaðu myndir af KDE skjáborðinu ásamt að kíkja á KOffice-vöndulinn.

  • KDE verkefnið
    • Afhverju er þörf á KDE?
    • KDE - Frá sjónarhorni notanda
    • Núverandi KDE útgáfa
    • Smá KDE saga
    • KDE staðreyndir og tölur
  • Alþjóðlegt KDE
  • KOffice

Um KDE

Skip menu "Um KDE"
  • Hvað er KDE?
    • Yfirlit
    • KDE verkefnið
    • KOffice verkefnið
    • Alþjóðlegt
    • Stefnuyfirlýsing
  • Skjámyndir
  • Prófaðu KDE
  • Tilkynningar
  • Almennar upplýsingar
  • Skjöl
  • Styðja við KDE
  • KDE dót
  • Sagan
  • Wiki síða

Niðurhal

Skip menu "Niðurhal"
  • Stöðug útgáfa
  • Þróunar útgáfa
  • Frumkóði
  • FTP spegill

Samfélagið

Skip menu "Samfélagið"
  • Fólkið
  • Póstlistar
  • Spjallborð

Þróa

Skip menu "Þróa"
  • Taka þátt
  • Þróunarupplýsingar
  • Villugagnagrunnur
  • Þýðing
  • Kóðavísanir
  • WebSVN

Flakka

Skip menu "Flakka"
  • KDE fjölskyldan
  • Alþjóðlegt

Global navigation links

  • KDE Home
  • KDE Accessibility Home
  • Description of Access Keys
  • Back to content
  • Back to menu

Leita:


Haldið við af vefstjóra is.kde.org
KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. | Lagalegt