Alþjóðlegt/staðfært
KDE verkefninu er ljóst að til að notandi geti notað kerfið með góðu móti er nauðsynlegt að hafa það á tungumáli hans. alþjóða/staðfærslu teymið (einnig kallað I18N/l10N teymið) hefur tekið að sér að þýða KDE forrit yfir á önnur tungumál. Teymið inniheldur í dag yfir 300 einstaklinga sem hafa þýtt KDE forrit og skjöl á yfir 70 tungumál. Þar af mörg sem eru lítið eða ekkert studd af hefðbundnum hugbúnaði, meðal annars: afríkanska, katalónska, eistneska, esperanto, íslenska, lettneska, litháíska og slóvenska. Öll KDE forrit styðja "hægri-til-vinstri" viðmót, og frá og með KDE 3.2 er aukinn stuðningur við indísk tungumál. GNU GetText og KBabel eru tól sem hafa nýst mjög vel í þýðingarstarfinu.
K skjáborðið