• Skip to content
  • Skip to link menu
K skjáborðið
  • Upphafssíða / Hvað er KDE? / Stefnuyfirlýsing
  • Veftré
  • Hafðu samband
 

Stefnuyfirlýsing

Hvað er KDE

KDE er Open Source skjáborðsumhverfi sem er byggt upp af einingum sem fylgja Open Source viðmiðunarreglunum að fullu.

KDE er OpenSource (TM)

Engar málamiðlanir

KDE er opið og frjálst í fullum skilningi orðsins.

Alþjóðlegt

KDE er sannarlega alþjóðlegt. KDE hefur verið þýtt á meir en 50 tungumál og fleiri eiga eftir að koma. KDE hönnunarhópurinn er allstaðar að úr heiminum.

KDE er sannarlega alþjóðlegt og ekki bundið neinni menningu.

Skuldbinding til yfirburða

KDE verkefninu er mjög umhugað um stöðugleika og nothæfni KDE skjáborðsins. Við reynum að halda aftur af ýkjum og áróðri og heldur skila hágæða starfi sem passar fyrir bæði byrjendur og tölvusérfræðinga. KDE er skuldbundið til yfirburðar.

KDE heldur sig undan ýkjum og er skuldbundið til yfirburðar.

KDE er Internet verkefni

KDE er Internet verkefni í besta skilningi orðsins. KDE var stofnað af GNU/Linux hökkurum sem sáu þörfina fyrir hágæða skjáborðsumhverfi fyrir UNIX. Öll hönnunin er opin og gerð og gefin út á Internetinu. Samskipti fara fram á póstlistunum okkar sem öllum er velkomið að taka þátt í, ásamt á USENET fréttahópunum comp.windows.x.kde og e.alt.comp.kde. KDE hefur verið síðan stofnun þess í 1996 hluti af vel þekktum OpenSource Internet verkefnum sem Linux kjarnanum, Apache, Perl, Emacs og fleiri.

KDE er sannarlegt opið þver-menningarlegt Internet verkefni.

Viðskiptaleg notkun

KDE hefur alltaf stutt viðskiptalega notkun af skjáborðinu. Öll grunnforritasöfn KDE eru gefin út undir LGPL leyfinu.

KDE er opið fyrir viðskiptalega notkun.

Óháð framleiðanda

Engum hluta viðmótsins er stjórnað af einu fyrirtæki, eða bannað að gera breytingar á honum. Allar stofnanir eða einstaklingar geta miðlað til KDE. Öllum er velkomið að taka þátt og öllum er heimilt að dreifa breyttum útgáfum af KDE.

Sannarlega opið. Enginn grunnhluti er lokaður kóði.

Forritunarmálsbindingar

KDE þvingar ekki hönnuði til að nota eitt ákveðið forritunarmál. Grunnhluti kerfisins er skrifaður í C++, sem er hratt og skilvirkt og býður upp á alla þá endalausu kosti sem eru í boði í dag. Bindingar í forritunarmál sem Python, TK/TCL og fleiri eru fáanlegar.

Ef þig langar að bæta við bindingu í annað forritunarmál hjálpum við þér gjarna.

Gluggastjóri

KDE notar Extended Window Manager Hints fyrir gluggastjóra. Ef þú notar gluggastjóra sem notar þennan staðal getur hann unnið auðveldlega með KDE skjáborðinu. Ef þú notar gluggastjóra sem er ekki samhæfur staðlinum, getur þú eftir sem áður notað einstök KDE forrit.

Enginn átrúnaður - notaðu hvað gluggastjóra sem er.

Þemur

KDE leyfir notandanum að ákvarða útlit og hegðun skjáborðsins. KDE býður upp á stórt úrval af þemum sem gera notandanum kleyft að skapa það umhverfi sem passar honum best.

Notandaákvarðað útlit og virkni.

Flutningshæfni

KDE og forritasöfnum þess er ætlað að vera flutningshæf á öll UNIX kerfi. KDE reynir að forðast bindingu við viðmót sem eru háð ákveðnu kerfi, þegar það er mögulegt. Staðreyndin er að KDE er fáanlegt fyrir GNU/Linux, FreeBSD, Sun-Solaris, og fleiri önnur kerfi.

Mörg kerfi

Um KDE

Skip menu "Um KDE"
  • Hvað er KDE?
    • Yfirlit
    • KDE verkefnið
    • KOffice verkefnið
    • Alþjóðlegt
    • Stefnuyfirlýsing
  • Skjámyndir
  • Prófaðu KDE
  • Tilkynningar
  • Almennar upplýsingar
  • Skjöl
  • Styðja við KDE
  • KDE dót
  • Sagan
  • Wiki síða

Niðurhal

Skip menu "Niðurhal"
  • Stöðug útgáfa
  • Þróunar útgáfa
  • Frumkóði
  • FTP spegill

Samfélagið

Skip menu "Samfélagið"
  • Fólkið
  • Póstlistar
  • Spjallborð

Þróa

Skip menu "Þróa"
  • Taka þátt
  • Þróunarupplýsingar
  • Villugagnagrunnur
  • Þýðing
  • Kóðavísanir
  • WebSVN

Flakka

Skip menu "Flakka"
  • KDE fjölskyldan
  • Alþjóðlegt

Global navigation links

  • KDE Home
  • KDE Accessibility Home
  • Description of Access Keys
  • Back to content
  • Back to menu

Leita:


Haldið við af vefstjóra is.kde.org
KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. | Lagalegt