• Skip to content
  • Skip to link menu
K skjáborðið
  • Upphafssíða / Hvað er KDE? / KDE verkefnið
  • Veftré
  • Hafðu samband
 

Yfirlit verkefnis

KDE verkefnið samanstendur af hundruðum forritara út um allann heim sem allir styðja hugmyndina um frjálsan hugbúnað. KDE verkefnið er frjáls hugbúnaður. Hver einasta kóðalína er gefin út undir LGPL/GPL leyfinu. Þýðir það að öllum er heimilt að breyta og dreifa KDE frumkóðanum, og að KDE er og mun alltaf vera öllum ókeypis.

Afhverju er þörf á KDE?

Hið venjulega X11 skjáborð hefur meðal annars eftirfarandi annmarka:

  • Engin auðveld gluggastilling.
  • Ekkert sameiginlegt hjálparkerfi forrita.
  • Ekkert sameiginlegt þróunarumhverfi.
  • Ekkert sameiginlegt skjalakerfi.
  • Vöntun á netgegnsæi á forritaplani.
  • Hönnun af X11 forritum er erfitt og þreytandi starf.

KDE - Frá sjónarhorni notanda

KDE býður venjulegum notendum upp á meðal annars:

  • Nútímalegt skjáborð sem lítur vel út.
  • Skjáborð sem er algerlega netgegnsætt.
  • Innbyggt hjálparkerfi sem veitir á auðveldan hátt aðgang að hjálp yfir notkun KDE og forrita þess.
  • Samhæft útlit og virkni á öllum KDE forritum.
  • Staðlaðar valmyndir og tækjaslár, flýtilyklar, litastef o.s.frv.
  • Alþjóðlegt: KDE er fáanlegt á yfir 50 tungumálum.
  • Miðstýrð samræming stillingarglugga.
  • Fjöldinn allur af góðum KDE forritum.

Núverandi KDE útgáfa

Núverandi KDE útgáfan samanstendur af eftirtöldum pökkum:

  • aRts: Analog rauntíma hljóðgerfill og hljóðpúki.
  • KDE-Libs: Ýmis forritasöfn.
  • KDE-Base: Grunnkerfið (gluggastjóri, skjáborð, spjaldið, Konqueror).
  • KDE-Network: KNode, KNewsticker, Kppp, ...
  • KDE-Pim: KMail, KAddressbook, KOrganizer, KPilot, ...
  • KDE-Graphics: Myndvinnsluforrit sem KDVI, KGhostview, KPaint, KFax, ...
  • KDE-Multimedia: Nóatún, KMidi, KSCD, ...
  • KDE-Utilities: KEdit, KCalc, KHexEdit, KNotes, ...
  • KDE-Edu: Kennsluleiksforrit.
  • KDE-Games: KAsteroids, KPat, KTetris, ...
  • KDE-Toys: Skemmtilegt dót.
  • KDE-Addons: Viðbætur fyrir Konqueror, Kate, Kicker og Nóatún.
  • KDE-Artwork: Aukalegar táknmyndir, snið, bakgrunnsmyndir og gluggaskreytingar.
  • KDE-Admin: Ýmis kerfisstjóratól.
  • KDE-SDK: Skriftur og tól sem einfalda hönnun af nýjum KDE forritum.
  • KOffice: Skrifstofuvöndull.
  • KDevelop: C/C++ þróunarumhverfi.
  • Quanta: Vefþróunartól.

Smá KDE saga

  • KDE var stofnað í október 1996. Tilkynningin kom 14. október 1996.
  • 15. ágúst 1997: KDE-ONE í Arnsberg, þýskalandi, 15 þáttakendur.
  • Desember 1997: KDE e.V.i.G. var stofnað til að vernda aðila frá lagalegum og fjárhagslegum skaðabótaskyldum.
  • 8. apríl 1998: KDE Free Qt Foundation var tilkynnt.
  • Beta 1 20. október 1997 - Beta 2 23. nóvember 1997 - Beta3 1. febrúar 1998 - Beta4 19. apríl 1998.
  • 1.0 kom út 12. júlí 1998.
  • 1.1 kom 6. febrúar 1999.
  • 1.1.1 kom út 5. maí 1999.
  • 1.1.2 kom út 13. september 1999.
  • KDE-Two fundur í Erlangen, 7. til 10. október 1999.
  • 1.89 kom út 15. desember 1999.
  • 1.90 (KDE2 beta1) 12. maí 2000 - 1.91 (KDE2 beta2) 14. júní 2000 - 1.92 (KDE2 beta3) 31. júlí 2000.
  • KDE-Three Beta fundur í Trysil (Noregi), 9. til 19. júlí 2000.
  • 1.93 (KDE2 beta4) kom út 23. ágúst 2000.
  • Qt verður GPL 4. september 2000.
  • 1.94 (KDE2 beta5) kom út 15. september 2000.
  • 2.0 Release Candidate kom út 10. október 2000.
  • 2.0 kom út 23. október 2000.
  • 2.0.1 kom út 5. desember 2000.
  • 2.1 Beta 1 kom út 16. desember 2000.
  • 2.1 Beta 2 kom út 31. janúar 2001.
  • 2.1 kom út 26. febrúar 2001.
  • 2.1.1 kom út 27. mars 2001.
  • 2.1.2 kom út 30. apríl 2001.
  • 2.2 Beta1 kom út 4. júlí 2001.
  • 2.2 kom út 15. ágúst 2001.
  • 2.2.1 kom út 19. september 2001.
  • 2.2.2 kom út 21. nóvember 2001.
  • 3.0 kom út 3. apríl 2002.
  • 3.0.1 kom út 22. maí 2002.
  • 3.0.2 kom út 2. júlí 2002.
  • 3.1 Alpha1 kom út 11. júlí 2002.
  • 3.0.3 kom út 19. ágúst 2002.
  • 3.1 Beta1 kom út 21. ágúst 2002.
  • 3.1 Beta2 kom út 2. október 2002.
  • 3.0.4 kom út 9. október 2002.
  • 3.0.5 kom út 18. nóvember 2002.
  • 3.0.5a kom út 21. desember 2002.
  • 3.1 kom út 28. janúar 2003.
  • 3.1.1 kom út 20. mars 2003.
  • 3.1.2 kom út 19. maí 2003.
  • 3.1.3 kom út 29. júlí 2003.
  • 3.2 Alpha 1 kom út 10. september 2003.
  • 3.1.4 kom út 16. september 2003.
  • 3.1.5 kom út 14. janúar 2004.
  • 3.2 kom út 3. febrúar 2004.
  • 3.2.1 kom út 9. mars 2004.
  • 3.2.2 kom út 19. apríl 2004.
  • 3.2.3 kom út 9. júní 2004.
  • 3.3 kom út 19. ágúst 2004.
  • 3.3.1 kom út 12. október 2004.
  • 3.3.2 kom út 8. desember 2004.
  • 3.4 kom út 16. mars 2005.
  • 3.4.1 kom út 31. maí 2005.
  • 3.4.2 kom út 28. júlí 2005
  • 3.4.3 kom út 13. október 2005
  • 3.5 kom út 29. nóvember 2005
  • 3.5.1 kom út 31. janúar 2006
  • 3.5.2 kom út 28. mars 2006
  • 3.5.3 kom út 31. maí 2006
  • 3.5.4 kom út 2. ágúst 2006
  • 3.5.5 kom út 11. október 2006
  • 3.5.6 kom út 25. janúar 2007

KDE staðreyndir og tölur

KDE er stórt verkefni. Hve stórt það er er ekki auðvelt að átta sig á, en hér eru nokkrar tölur:

  • KDE SVN kóðageymslan inniheldur í dag um það bil 4 milljónir af kóðalínum. (Linux Kernel útgáfa 2.5.71 inniheldur ca. 3.7 milljón kóðalínur.)
  • Yfir 800 aðilar hjálpa til við þróun KDE.
  • Bara þýðendahópurinn er yfir 300 einstaklingar.
  • 11,014 CVS færslur voru sendar inn í maí 2002.
  • KDE hefur 17 opinbera www spegla í 12 löndum.
  • KDE hefur 106 opinbera FTP spegla í 39 löndum.

Um KDE

Skip menu "Um KDE"
  • Hvað er KDE?
    • Yfirlit
    • KDE verkefnið
    • KOffice verkefnið
    • Alþjóðlegt
    • Stefnuyfirlýsing
  • Skjámyndir
  • Prófaðu KDE
  • Tilkynningar
  • Almennar upplýsingar
  • Skjöl
  • Styðja við KDE
  • KDE dót
  • Sagan
  • Wiki síða

Niðurhal

Skip menu "Niðurhal"
  • Stöðug útgáfa
  • Þróunar útgáfa
  • Frumkóði
  • FTP spegill

Samfélagið

Skip menu "Samfélagið"
  • Fólkið
  • Póstlistar
  • Spjallborð

Þróa

Skip menu "Þróa"
  • Taka þátt
  • Þróunarupplýsingar
  • Villugagnagrunnur
  • Þýðing
  • Kóðavísanir
  • WebSVN

Flakka

Skip menu "Flakka"
  • KDE fjölskyldan
  • Alþjóðlegt

Global navigation links

  • KDE Home
  • KDE Accessibility Home
  • Description of Access Keys
  • Back to content
  • Back to menu

Leita:


Haldið við af vefstjóra is.kde.org
KDE® og K Desktop Environment® eru vörumerki af KDE e.V. | Lagalegt