Orðabækur
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
Orðabækur / orðalistar á vefnum
Hér er listi yfir nokkrar orðabækur / orðalista sem finna má á vefnum.
Þessi listi er ekki tæmandi og ef þú veist um síðu sem passar með hér þá er bara að bæta henni við.
| Innlendar | |
|---|---|
|
Orðabók Háskólans (http://www.lexis.hi.is/) | Heimasíða Orðabókar Háskólans. |
| Wikiorðabók (http://is.wiktionary.org) | Wikiorðabókin (Wiktionary á íslensku) er frjáls orðabók á íslensku. |
|
Ritmálsskrá (http://lexis.hi.is/cgi-bin/ritmal/leitord.cgi?adg=innsl) | Ritmálssafn Orðabókarinnar hefur að geyma dæmi um notkun orða í íslenskum ritheimildum á nærri fimm alda tímabili, elstu dæmin eru frá miðri 16. öld. Í safninu eru u.þ.b. 2,5 milljónir notkunardæma og er meginhlutinn tölvuskráður og aðgengilegur á vefsíðu Orðabókar Háskólans. Ritmálsskráin er yfirlitsskrá um orðaforðann í safninu, sem alls nemur rösklega 700 þúsund orðum.
|
|
Textasafn (http://www.lexis.hi.is/corpus/leit.pl) | Í textasafni Orðabókarinnar eru gamlir og nýir textar af ýmsum toga sem skiptast á milli 23 efnisflokka, samtals um 52 milljónir lesmálsorða. Meðal efnisflokka má nefna fornrit, trúmál, skáldverk, sagnfræði, raungreinar og dagblöð. Textasafnið er mikilvægt hjálpargagn þeim sem fást við málfræðirannsóknir, s.s. beygingarfræði, setningarfræði og orðabókarfræði, einnig orðtíðnikannanir o.fl.
|
|
Orðasambönd (http://www.lexis.hi.is/osamb/osamb.pl) | Orðasambandaskrá Orðabókarinnar er unnin upp úr tölvuskráðum notkunardæmum ritmálssafnsins sem spanna íslenskar ritheimildir allt frá miðri 16. öld. Í skránni birtist fjölbreytileg mynd af notkun einstakra orða í föstum samböndum og í dæmigerðu samhengi við önnur orð. Orðasambönd með algengum orðum skipta víða tugum og hundruðum og varpa sem heild skýru ljósi á merkingu og önnur notkunareinkenni orðanna. Skráin veitir einnig innsýn í sögu og samhengi íslensks orðaforða á síðari öldum.
Orðasambandaskráin hefur nú að geyma rösklega 120.000 orðasambönd af ýmsu tagi, sem tengd eru u.þ.b. 50.000 lykilorðum (leitarorðum).
|
|
Beygingarlýsingar (http://www.lexis.hi.is/beygingarlysing/) | Í beygingarlýsingu íslensks nútímamáls birtast beygingardæmi rúmlega 170 þúsund orða. Í beygingardæmunum eru allar beygingarmyndir hvers orðs. Í safninu eru beygingar ósamsettra og samsettra orða úr nútímamáli, auk mannanafna.
Hægt er að leita að uppflettimynd orðs, eins og hún birtist í orðabókum, eða að einstökum beygingarmyndum orðsins.
|
|
Stærðfræðafélagið (http://www.hi.is/~mmh/ord/leitun.html) | Íslenska stærðfræðafélagið hefur um langa hríð unnið að íðorðaskrá í stærðfræði. Þar sem þörfin á slíku safni er brýn, ákvað orðanefndin, að tillagi og umsjón Magnúsar M. Halldórssonar, að bjóða upp á almennan aðgang í gegnum tölvunet með vefmiðlara.
|
|
Orðabanki (http://herdubreid.rhi.hi.is:1026/wordbank/search) | Orðabankinn er í eigu Íslenskrar málstöðvar. Hann hefur að geyma sérhæfðan hugbúnað fyrir skráningu og birtingu orðasafna. Höfundar fá aðgang að skráningarkerfi til þess að vinna að söfnum sínum og bætast þau síðan í hóp annarra orðasafna sem almennir notendur orðabankans geta leitað í. |
|
Málfarsbanki (http://www.ismal.hi.is/malfar/) | Í málfarsbanka íslenskrar málstöðvar er hægt að slá inn leitarorð sem lúta að málnotkun og finna úrlausnir sem teknar hafa verið saman í íslenskri málstöð. Vonast er til að með málfarsbankanum verði leiðbeiningar íslenskrar málstöðvar um mál og málnotkun enn aðgengilegri en áður.
|
|
Skýrslutæknifélagið (http://www.ismal.hi.is/to/listar/gluggord.html) | Þetta eru bráðabirgðaniðurstöður frá fundum orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands 11.09.95 - 22.01.96 um heiti á hugtökum er tengjast gluggaumhverfi, með síðari endurbótum. Hafa ber í huga að heitin geta breyst og eru ábendingar um endurbætur vel þegnar. Hugtökin varða einkum gluggaumhverfi þótt ýmislegt fleira hafi flotið með. |
|
Landaheiti (http://www.ismal.hi.is/landahei.html) | Íslensk málstöð hefur lista yfir landaheiti og höfuðstaðaheiti. |
|
Ritreglur (http://ismal.hi.is/Ritreglur0.htm) | Íslensk málstöð hefur safn af pdf skjölum yfir ritreglur. |
|
Málfar (http://www.ismal.hi.is/maltext.html) | Íslensk málstöð hefur tekið saman ábendingar um málfar. |
|
Hugtakasafn (http://www.hugtakasafn.utn.stjr.is/) | Í hugtakasafni Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins er að finna þýðingar ýmissa hugtaka úr textum sem hafa verið þýddir í Þýðingamiðstöðinni. Megin hlutverk Þýðingamiðstöðvarinnar er að þýða gerðir, sem heyra undir EES-samninginn samkvæmt ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, og aðra texta sem tengjast Evrópska efnahagssvæðinu. Einnig hafa starfsmenn hennar sérhæft sig í að þýða alþjóðlega samninga, lagatexta, gerninga og aðra texta þar sem nota þarf staðlaðan hugtakaforða. Þar má nefna Schengen-texta, fríverslunarsamninga, Evrópuráðssamninga og aðra milliríkjasamninga.
Í hugtakasafninu eru ýmis almenn hugtök á sviði laga og stjórnsýslu en einnig er þar að finna mikið af tæknilegum hugtökum sem tengjast hinum ýmsu sérsviðum EES-samningsins. Þá eru í safninu fjöldamörg hugtök sem tengjast Evrópusambandinu og stofnunum þess. Í apríl 2003 eru í safninu um 34 000 færslur og stöðugt bætast nýjar við. |
|
Sjávardýraorðabók (http://www.hafro.is/ordabok/) | Gunnar Jónsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnuninni tók saman sjávardýraorðabók á 10 tungumálum. |
|
Wikipedia (http://is.wikipedia.org/) | Wikipedia (www.wikipedia.org) er frjáls (copyleft) alfræðiorðabók sem er búin til í samvinnu, með svokölluðu wiki kerfi. Fyrir utan almennan alfræðitexta, er alfræðiefnið á síðunni oft tengt í almanök og landafræðiskrár, að auki er haldið utan um nýlega atburði.
Allur texti á Wikipedia fellur undir Frjálsa GNU handbókarleyfið en myndir og margmiðlunarefni fellur stundum undir önnur skilyrði. Mest af efnisinnihaldi Wikipedia er komið frá notendum. Allt efnið er síbreytilegt og það verður aldrei fullkomnað. Vegna þessa er Wikipedia einstætt viðfangsefni.
|
|
Orðanefnd LÍSU (http://web.rvk.is/lisa/ordasafnsida01.htm) | Orðanefnd LÍSU hefur komið út á vefinn miklu orðasafni yfir landupplýsingakerfi og skyldar greinar. Orðalistinn er uppfærður reglulega og ný útgáfa sett upp janúar 2004.
|
|
Stafsetning (http://www.hi.is/~eirikur/stafsreg.htm) | Auglýsing um íslenska stafsetningu.
[Þetta er auglýsing nr. 132/1974, með innfelldum breytingum skv. auglýsingu nr. 261/1977. ]
|
|
Greinarmerkjasetning (http://www.hi.is/~eirikur/greinreg.htm) | Auglýsing um greinarmerkjasetningu.
[Þetta er auglýsing nr. 133/1974, með innfelldum breytingum skv. auglýsingu nr. 184/1974. ]
|
|
Orðtök/orðatiltæki (http://www.ms.is/category.aspx?catID=379) | Mjólkursamsalan hefur tekið saman lista yfir orðtök/orðatiltæki úr bókinni Íslensk orðatiltæki MERGUR MÁLSINS uppruni, saga og notkun.
|
| Erlendar | |
|
Webopedia (http://www.webopedia.com/) | Webopedia is a free online dictionary for words, phrases and abbreviations that are related to computer and Internet technology. |
|
Urban Dictionary (http://www.urbandictionary.com/) | Urban Dictionary is a slang dictionary with your definitions. Define your world. |
|
TheFreeDictionary.com (http://www.thefreedictionary.com/) | English, Medical, Legal, and Computer Dictionaries, Thesaurus, Encyclopedia, a Literature Reference Library, and a Search Engine all in one! |
|
whatis.com (http://whatis.techtarget.com/) | whatis.com® is a knowledge exploration and self-education tool about information technology, especially about the Internet and computers. |
|
LEO (http://dict.leo.org/) | Þýsk-ensk, þýsk-frönsk og þýsk-spænsk orðabók. |
|
Webster (http://www.webster.com/) | Merriam-Webster Online. |

