Ráðstefnur
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
| Efnisyfirlit |
aKademy 2005
KDE ráðstefnan, aKademy 2005 (http://conference2005.kde.org/), var haldin í Málaga á Spáni, 27. ágúst til 4. september. Þessi síða inniheldur upplýsingar og fréttir frá ráðstefnunni.
Aðstaða og mæting
KDE ráðstefnan, aKademy 2005 laugardaginn 27. ágúst með fyrirlestrum fyrir notendur og kerfisstjóra. Sunndaginn 28. ágúst, voru yfir 150 manns mættir og sumir segja þetta bestu aKademy ráðstefnuna hingað til. Aðstaðan í Málaga er mjög góð og kannski heppilegri heldur en í Ludwigsburg í Þýskalandi í fyrra þegar ráðstefnan var haldin í kvikmyndagerðarskóla. Þetta árið er hún hinsvegar í verkfræði- og tölvudeild Málaga háskóla. Flestar, ef ekki allar byggingarnar, eru innan við 10 ára gamlar.
Á kvöldin gátu ráðstefnugestir síðan labbað um gömlu göturnar í miðborg Málaga og fengið sér bjór og pizzu. Það gerðu nokkrir þeirra allavega og voru svo heppnir að finna WiFi punkt við kirkjuna. Sumir vildu meina að þetta væri einkatenging kardinálans en aðrir sögðu þetta gjöf guðs til KDE. Hver segir svo að Open Source sé ekki trúmál...
Opnunarkvöldið
Novell hélt veislu handa fjöldanum fyrsta kvöldið í miðborg Málaga með kvöldverð, tónlist og dansi. Rausnarlegir þeir hjá Novell en eins og fyrri ár þá er meirihluti þátttakenda á aKademy karlmenn þannig að dansfélagar voru fáir. ;-) Hinsvegar eru konur greinilega að byrja að taka meira þátt í KDE og einn forritari sagði að konan hans væri líka forritari. Sjálfur er upptekinn við forritun á einu aðalforritinu í KDE. Daginn eftir veisluna voru menn síðan mættir í tölvustofurnar og byrjaðir að forrita, þýða, eða skrifa greinar.
Opnunarræðan
Mánudagurinn byrjaði klukkan 9 f.h. með opnunarræðu Eirik Chambe-Eng frá Trolltech (http://www.trolltech.com/). Þar með hófst sá hluti ráðstefnunnar sem er fyrir forritara. Eirik kynnti niðurstöður kannana Trolltech á því hverjir eru að nota Qt stefjasafnið og í hvað. Trolltech er núna með yfir 3000 viðskiptavini og s.l. ár hefur starfsmannafjöldinn aukist úr 95 í 140. Tekjur voru USD 13.4 miljónir á síðasta ári og hann sagði að fyrirtækið stæði mjög vel fjárhagslega sem gerir þeim mögulegt að styðja meira við KDE. Nýlega tóku þeir Aaron Seigo í fullt starf en hann hefur verið mjög virkur í KDE undanfarin ár og er núna einn af höfuðpaurum Plasma (http://plasma.kde.org/), næstu kynslóðar skjáborðsins.
Eirik sagði að það væri mikill vöxtur í Kína á Linux á farsímum og þar er Trolltech með yfir 20 kúnna sem eru að nota Qt og Qtopia fyrir notendaviðmótið á farsímum. Eirik segist gera ráð fyrir því að þessi vöxtur í Kína eigi eftir að hafa áhrif á hvað er notað á farsímum á vesturlöndum. Hann var að sjálfsögðu með einn lítinn og nettann farsíma með sér sem keyrði Qtopia.
Matthias Ettrich, stofnandi KDE, tilkynnti um fyrstu verðlaunaafhendingu KDE, eða "aKademy Appreciation Awards Ceremony", sem verður haldin á þriðjudagsmorgun klukkan 11 f.h. Tilgangurinn með þessari athöfn er að gefa verkefnum eða einstaklingum viðurkenningu fyrir framúrskarandi vinnu fyrir KDE. Allir koma til greina, þ.m.t. forritarar, vefhönnuðir, grafíkhönnuðir, þýðendur og handbókahöfundar.
Þrjú verðlaun verða veitt:
- Besta nýja forritið eða viðbót við núverandi forrit
- Besta innleggið sem er ekki forrit (heldur þýðing, handbók, grafík, vefsíða, o.s.frv.)
- Sérstök dómnefndarverðlaun
Fyrirlestrar
Aaron Seigo hélt fyrirlestur um QDesigner 4, sem hefur fengið fullt af nýjum aðgerðum og er orðið býsna öflugt tól. Hann sagði að nú sé loks orðið raunhæft að viðmótshönnuðir hanni viðmótin með QDesigner og láti síðan forritara fá .ui skrána.
Það hefur orðið mikil vakning á notendaviðmótshönnun innan KDE og fyrirlestur Pete Goodall frá Novell (http://www.novell.com/) um notkunargreiningu á Novell Linux Desktop (http://www.novell.com/products/desktop/eval.html) fékk góðar viðtökur. Hann sýndi meðal annars myndbönd af notendum í erfiðleikum með sum forritin og þó það hafi oft verið hlegið var augljóst að viðstaddir kunnu vel að meta skilaboð fyrirlestursins. Novell ætlar greinilega að leggja vinnu í að gera almenna notkun á Linux að veruleika. Það kom t.d. engum á óvart þegar Eirik Chambe-Eng frá Trolltech sagði í ræðu sinni um könnun Trolltech á Qt notendum:"...en þar sem almenn notkun á Linux er ekki mikil...". Meðlimir KDE vita að það er enn stórt verkefni framundan til að gera almenna notkun á Linux að veruleika.
Fyrirlestur Pete Goodall varpaði smá ljósi á notkun Linux meðal Windows notenda. Pete sagði verklistann fyrir notkunargreininguna hafa komið að miklu leiti frá tæknideild Novell sem svarar fyrirspurnum notenda þannig að þeir voru að rannsaka þekkt vandamál í stað þess að gera almenna rannsókn. Kannski að hún komi síðar.
Deepika Chauhan og David Carson kynntu notkun Nokia (http://www.nokia.com/) á KHTML/WebCore, sem Nokia vill nota fyrir S 60 línuna af farsímum í stað þess að leggja í slíkt verkefni sjálfir. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að KHTML/WebCore væri besta lausnin (sem "rendering engine") vegna þess hve hönnun KHTML er góð og minnisnotkunin lítil. Þau eru búin að vera á fundum með KHTML forriturum hér á aKademy ráðstefnunni ásamt því að fara á marga af þeim fyrirlestrum sem boðið hefur verið upp á. Þar að auki hefur þróunarhópurinn hjá Nokia verið kynntur fyrir KDE.
Wikipedia
Domas Mituzas frá Litháen hélt fyrirlestur um Wikipedia (http://www.wikipedia.org/) sem er komin á Topp 50 listann yfir vefsíður með allt að 3000 beiðnir á sekúndu. Þar má núna finna yfir 2.5 miljónir greina á yfir 100 tungumálum. Wikipedia byrjaði árið 2001 og var komið með þrjá skráarþjóna 2003 en nú eru þeir orðnir áttatíu. Það vinna sjö manns við umsjón á Wikipedia, allir launalaust og í hlutastarfi. Þeir fá aðstoð frá mörgum öðrum sjálfboðaliðum af og til og öllum "Wikimaniacs" sem setja inn efni reglulega og finna villur í hugbúnaðinum.
aKademy Awards
Þá er það ljóst að fyrstu 5 handhafar KDE aKademy Awards eru:
- Albert Astals Cid fyrir Kpdf (http://kpdf.kde.org/)
- Enrico Ros fyrir Kpdf (http://kpdf.kde.org/)
- Stephen Kulow fyrir vinnu við SVN (http://kpdf.kde.org/)
- Oswald Buddenhagen fyrir vinnu við SVN (http://kpdf.kde.org/)
- Lauri Watts fyrir vinnu við handbækur KDE (http://docs.kde.org/)
Allir þátttakendur á aKademy sem voru á staðnum í dag eru búnir að skrifa á plöggin (á stærð við plaköt) og þau voru afhent áðan en formlega athöfnin var í gær, 30. ágúst. Þessir fimm verðlaunahafar verða því dómnefndin á næsta ári.




